VovoPietsch
Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan
13.2.2008 05:14:37 / vovo

HEILABROT

1. Hvaða tala á að koma í stað spurningamerkisins?
49132235579?

2. Hvaða tvær tölur koma í stað X og Y?
 7 8 6 9 5 10 X Y

3.Hvaða bókstafur á að koma í stað spurningamerkisins?
O  D  Q  P  B  ?
S  G  R  U  C  J

4. Settu þær tölur sem vantar í reitina.
| 74882 |  3584  |            |
| 29637 |            |   192   |
| 74826 |            |            |

5. Kastor Og Pollux eru tvíburar og fæddust með klukkutíma millibil. Kastor er fæddur 5. nóvember 1987 en Pollux 6. nóvember sama ár. Engu að síður fæddist Pollux á undan. Hvernig fær það staðist?

6. Faðir vildi hvetja son sinn til að læra reikning og samdi við hann um að sonurinn fengi 80 kr. fyrir hvert rétt reiknað dæmi en þyrfti að borga föðurnum 50 kr. fyrir hvert dæmi sem hann reiknaði skakkt.
     Eftir að hafa reiknað 26 dæmi kom í ljós að hvorugur skuldaði hinum peninga. Hve mörg dæmi hafði sonurinn reiknað rétt?

7. Hvaða dagur er tveimur dögum fyrir daginn eftir daginn þremur dögum eftir daginn fyrir þriðjudag?

8. Ef 27 froskar veiða 27 flugur á 27 mínútum, hversu marga froska þarf þá til að veiða 81 flugu á 81 mínútu?

Svo ein auðveld að lokum:
9. Hve margar mínútur eru þangað til klukkan verður 10, ef 90 mínútum síðar eru liðnar jafnmargar mínútur síðan klukkan var 11?