VovoPietsch
Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan
20.02.2007 17:05:00 / vovo

Erum við að tala um viðbjóð?

okei. ég fékk sendan link á MSN. Beðinn um að fara í það & setja video á 55.55 . ! Ég ætla byðja ykkur um að gera það sama.

Hér er linkurinn; KlikkiðHér

Eins & fyrr segir, þá farið þið á 55.55 & ýtið á play. Horfið í nokkrar sekúndur & horfið vinstra megin á gólfið, hliðin á fréttamanninum.  Hvað sjáið þið?

 Framkvæmdastjóri Bónuss er hér í Viðtali útaf þessu;

 http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1254584 


Endilega segið ykkar skoðun á þessu!

Bónus býður betur ?

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 14:27:46 / vovo

Blellíss

Styttist í næsta blogg. Ég lofa. Hef verið e-ð busy síðustu daga.. veit samt ekki afhverju? Tölvu hangs?

Styttist það styttist

ógeðisfólkhérnanálægtmérpassiðykkurdjöfullinn:'/


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 20:31:48 / vovo

Ég var að pæla..

Fólk, góða fólk við skjáinn.

Ég var að pæla. Pælingarnar eru HÉR

Endilega ef þið hafið e-hvað um þessar pælingar að tala um , þá skrifið þið í skoðanir.
Alltaf gaman að sjá comment á síðunni sinni. Þið þekkið þetta er það ekki?

Fréttirnar eru litlar af mér. Nema jú ég er orðinn Nettkjepz . Vóhó þvílíkur heiður kjepz.
Það snjóaði áðan, hrikalega langt síðan það var, ég hélt uppá það með því að sofna. Svaf svo vel að ég vaknaði með svaka blóðnasið. Ég vaknaði reyndar á réttum tíma, því blóðnasiðurinn var rétt að byrja.. En slagurinn á milli mín & blóðnasiðsins endaði með sigri kjepz.

Komið nóg krakkar?
allt í lagi
bless

VovoNetkjepz át


» 20 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 22:47:11 / vovo

Kallinn.. óheppinn?

J00 maðafokka!

Vovo maðurinn hér sem á þessa síðu að fara í aðgerð?
ekki það sem maður dreymdi um í nýársgjöf.

En maður fær að vita af þessu 15.jan. vonandi. En þá er ég að fara til sérfræðings.




En maður vonar bara það besta. en ef ég er að fara í aðgerð þá er það liðþófaaðgerð í hnénu. nánar í vinstra hnénu.

En af lífinu sjálfu er lítið að frétta nema ég er bara hress.
Fyrsti skóladagurinn í dag var frekar þægilegur.
Þannig ég er ekki að fara stunda neina kappleiki næstu dagana, þannig nú tek ég mér bara smá pásu [a]. á maður það ekki inni?
Kveð að sinni, loks þegar ég var byrjaður að hitna.

VovoPíts. verðandi ímó kveður.
   "hot Emo"

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 14:51:43 / vovo

Hvert fór það gamla?

Gleðilegt nýtt ár & takk fyrir það gamla.
Nú er 2007 byrjað & vonandi verður það betra en 2006, þó að ég hef litlu að kvarta.
Vill maður ekki alltaf e-hvað meira eða betra?

Árið 2006 var langt & strangt, í gær þá var ég að hugsa hvað gerðist á þessu ári & ótrúlegt en satt þá var Olli, Trítill & allir þeir í Andarungum . Það finnst mér frekar skrítið, mér finnst svo langt síðan það var ;oo!

Ég fermdist á árinu 2006.
Ég fór til Danmörku með handboltanum.
Ég fór til Svíþjóðar með fótboltanum.
Ég fór til Spánar með m.&p.
Ég fór til Eyja með NafnaGeir.

Þessi ár eru þvílíkt fljót að líða finnst manni alltaf, en samt gerist alltaf svo drullu mikið á einu ári.

Ég ætla bara að hafa þetta stutt hér í dag.
Vegna ´anna´ í FM´07. Var í honum allan gærdag & er byrjaður aftur í dag.

Farið vel með ykkur & vonandi verður 2007 árið ykkar.

Ótrúlegt en satt, en þá er þetta InflúensuVírus.


» 18 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 15:38:30 / vovo

Kallinn!

Þá hef ég kallinn sjálfur, maðurinn á bakvið þessa síðu ákveðið að starta þessu uppá nýtt. Blogg svona nokkrum sinnum í viku. Þá er ég sáttur , hvað með ykkur skiptir engu :] .. 

                  

Ég óska ykkur gleðilega hátíð.
Gangi ykkur vel í lífinu.
Vonandi munu þið stunda þessa síðu.
Vel gert.
Áfram Ísland.

VovoPietsch


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 18:07:41 / vovo

Kallinn?

Kallinn að byrja bloggið aftur ? Nææjj. Held nú ekki :D


Vovo Pietsch kveður.
Andarungar.is á meðan..

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 16:58:04 / vovo

Ertu að grínast?

Hvað er að ske? Tíminn er svo fljótur að líða. Gengur ekki. Sumarið er komið og vonandi til að vera . Þetta byrjaði allt á miðvikudaginn eða fimmtudaginn. Ég man ekki. Allavegana í gær lá maður bara í sólbaði í setberginu hjá Aroni. Það var fínt. Frekar heitt (: .. maður hugsaði bara að maður væri á Spáni.. Eftir mánuð verð ég á Spáni (:.. og 3 vikur í Svíþjóð. Vá þetta er svo fljótt að líða. Vinnan er ágæt. Mæta klukkan 8:00 fótboltaskólinn byrjar 09:00 og er að vinna til 12:00 ágætt bara :D

Svo er HM, 16 liða úrslit byrjuð. Þýskaland komið áfram sigruðu Svíana. Aumingja Svíarnir. Henke klikkaði víti. En mín lið bæði komin áfram. Ghana og Italy. Klassi :D

Annars hefur maður um lítið að skirfa. Haukar sigruðu Leikni í gær. 5-2 á útivell komust 5-0 yfir. Og misstu 2 leikmenn útaf með rauð spjöld. Og Leiknir klikkuðu víti. Þetta var snilldar leikur :D Og stuðningsmenn Leiknis komu með nokkra mola og hér er einn; " Dómari þú ert fáviti og þú veist það, farðu bara heim til þín" haha..

//Vovo Kveður


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 17:52:30 / vovo

Til hamingju Gerrard.

Alltof fljótt.  Já, Meira en vika síðan ég bloggaði hér síðast. Þannig ég ákvað að blogga núna, en þar sem það hefur voða lítið verið að gerast undanfarna daga þá veit ég voða lítið um hvað blogg mitt í dag verður um.
En byrjum. Vinnan er hafin ... Allt í lagi bara.. þar sem ég sótti um í unglingavinnunni uppá ásvöllum er ég bara feginn að vera í fótboltaskólanum, staðin fyrir að vera útí bæ inní görðum liggjandi í rennblautu grasi og rífa upp arfa. Staðin fyrir að vera bara uppá ásvöllum með litlum krökkum og ef það er vont veður er bara farið inní íþróttahús. Nice?  

Svo hef ég annað fátt eitt í fréttum að færa. Eða Jú eiginlega. HM. Vá var ég búinn að gleyma þessu? eða ég ætlaði náttúrlega ekkert að blogga um það.. okei ég skal blogga um það. Nú þessum töluðu orðum voru Englendingar að vinna sinnan annan skíta sigur. Unnu fyrsta leikinn sinn 1-0 sjálfsmark og núna sigra þeir Trinidad&Tobago 2-0 með marki frá Tannstönglinum á 83.mín og Gerrard á 91.mín. með vinstri. Fyrsta mark Gerrard á Heimsmeistaramóti Til hamingju. Þeir eiga ekki eftir að komast langt í þessari keppni með svona leikjum. Spánverjar rúlluðu aftur á móti Úkraníu 4-0!!! En liðið mitt í þessari keppni er Ítalía og Ghana. Saman í riðli. Ítalía vann Ghana 2-0. Pff. Ghana taka næstu 2 leiki og komast áfram ásamt Ítalíu.

Ekki meira. Byð að heilsa Geira.
//VovoPietsch.


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 13:45:52 / vovo

DanmörkuFerðin

Þá er maður kominn heim frá Danmörku.. Þvílík ferð, þvílíkir göngutúrar og ég veit ekki hvað og hvað.
Þetta byrjaði á því að á Miðvikudaginn 31.maí mætti maður uppá Ásvelli klukkan 04:30 rosa ferskur og lagt af stað uppá Flugvöll klukkan 05:00. Þegar þangað var komið tók maður uppá því að hringja í fólk og heyra í fólkinu og kveðja það.. Sumir glaðir, sumir þreyttir, aðrir pirraðir.. Svo var lagt að stað og komið til Köben um hádegi, Þar byðum við uppá flugvelli í 1 og hálfan klukkutíma eftir töskunum.. Svo var lagt af stað til Skjern og við vorum komnir þangað klukkan 20:30 ca. Semsagt 12 tímaferðalag, Þar gistum við í 2 nætur, hittum Aron Kristjáns. Villa Vill. Og aðra snillinga í Skjern kepptum svo við Skjern í æfingaleik og töpuðum með 1 marki. Höllin þarna var snilld.. 4 æfingasalir, keilusalur, sundlaug, Félagsmiðstöð, Boxsalur, lyftingarsalur.
Svo snemma á föstudeginum fórum við í Legoland. Vorum þar í nokkra klukkutíma og fórum svo til Esbjerg þar sem mótið --> VesterhavsCup var haldið. Þegar við komum tókum við úr töskunum fórum í ógeðslegan mat og fórum svo niðrí bæ þar var e-h HappyNight sem þýðir ; Allar búðir opnar til 00:00. Við vorum þar til 23:04 og fórum svo bara að sofa klukkan 00:17.
Á laugardeginum byrjaði mótið, unnum fyrsta leikinn, en töpuðum svo gegn Skjern sem var hræðilegur leikur. Dómarinn ? Pass. Gerðum voða lítið eftir leikina.
Á sunnudeginum kepptum við svo við e-h glatað lið unnum 40 - 13. Og svo seinni leikinn e-h þannig líka. Vorum komnir í undanúrslit. Kepptum Team Tangen  danskt lið. Unnum þann leik. Baráttu sigur. Geðveikur leikur. Svo kepptum við gegn Skjern í úrslitum. Jafn leikur en Skjern höfðu betur með e-h 3-4 leikjum. Ágætur árangur.
B-2 lentu í 5.sæti en Eldra árið vann mótið en þeir voru að keppa við eldri gaura. Eftir leikina fórum við svo í sundlaugarhöll. Vorum bara stutt var að loka. 
Mánudaginn vöknuðum við snemma og ferðin var heitið til Köben. Fórum í Tivoli-ið. Það var fínt. Svolítið þreyttur reyndar .
Svo á þriðjudaginn fórum við bara á Strikið vorum þar í 4 tíma. Fórum svo uppá flugvöll. Og flug klukkan 22:50 á dönskum tíma [20:50] íslenskum tíma. Komum heim 23:55 íslenskum tíma [01:55] dönskum tíma.
Þetta var fín ferð sko. Labbað reyndar mikið, þar sem það var 40.mín frá skólanum sem við gistuðum í og þar sem íþróttahúsið var. 20.mínútur í matinn. 10.mín í næsta strætóskýli. En allt bara ágætt.
Sjáumst!


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 14:58:31 / vovo

Vika?

OMG já. Vika í hvað? Jú auðvitað utanlandsferð. Fyrsta utanlandserðin í langan tíma ! Danmörk. Kaupmannahöfn & Esbjerg & Skjern. Allavegana miðvikudaginn 31.maí ég fer til útlanda. Þá er það komið á hreint.

 En Prófin búin, kláruðust á mánudaginn með Náttúrufræðinni. Þetta gekk bara ágætlega hjá mér :o En enn er skóli. Hvað eru við að gera í skólanum í dag? EKKERT!! Tilgangurinn? ENGINN!

Um helgina voru e-h Svíar í hfj. Það er ekki frá sögu færandi nema bara vegna þess að þau komu hingað til að spila handbolta. Strákar, Stelpur frá Jönkopping Held það.. uuu Fædd 90/91 koma spila handbolta á Ásvöllum. Þvílíkur lúxus. Svo fórum við í Keilu með þeim. Fínt Fínt. Gekk bara bærilega segjum það ;)

Úrtaksæfingar næstu helgi. 92 Model. Handbolti. Standa sig. Ekkert annað.
Fyrsti leikur í Íslandsmótinu með 4.flokki á föstudaginn á móti Víði/Reyni. Knattspyrnufélagið Víðir og Knattspyrnufélagið Reynir. Verðum að taka þá..!

Nú er allt sem ég ætlaði mér að segja komið. Nei ég gleymdi einu. Kallinn er kominn með strípur. Þetta er bara ágætt. Smá klipping varla neitt :D og svo bara nokkrar strípur. Svo er það bara Demantinn í eyrað. 12 tíma Ljósakort. Tattó. Og kallinn er farinn í til útlanda .. Flottur?

//Vovo Úglenglingur


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 13:02:23 / vovo

Próffin

Allt að vera búið? 8.bekkur að klárasta ;) Þetta er búið að vera fínn vetur. Vá,, haha allt það sem hefur gerst í skólanum á þessu ári er hrottalegt :D en samt skemmtilegt að rifja upp.
En svo eru 13 dagar í Danmörk. Vonandi verður sól .. Bara Wörka tanið. En ef ekki þá fer maður til Svíþjóðar í júlí, og ef ekki þá, þá er það bara Spánn í lok júlí og ef ekki þá, þá bara treystir maður á Ísland, ef ekki þar þá bara allt búið. Nei, ég hlít að lenda á eitthverjum sólardögum. Einhverntímann einhverstaðar. En ég ætlaði samt ekki að hafa þetta langt. Þar sem maður er að klára prófin, og langt síðan ég bloggaði þá fínt að hafa þetta smá hérna.
En vá SVEKKJANDI á mánudaginn, ARG..! Haukar - Þróttur R. á mánudaginn síðasta og viti menn Þróttarar skoruðu bæði mörkin sín í uppbótartíma 92.mín og 94.mín. :S Vá, ég bara trúði þessu ekki.
Svo er uppskeru hátíðin á eftir handboltanum, Ætli ég skelli mér ekki? Svo auðvitað í kvöld SILVIA NIGHT SUPERSTAR!, Guð minn góður, afsakið á gelgjunni, en hvernig endar þetta? skítur hún á sviðið og vinnur?
RÚV í kvöld. -Bless-

http://www.wowow.co.jp/liga/member/barcelona.htmlTil Hamingju, Barcamenn!

//Vovo Superstar!


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 16:50:17 / vovo

Ekki morgun heldur hinn!

Ég lofaði, ég lofaði, ég lofaði! Og hér kemur það.  Ætla að spá fyrir 1.deildinni í sumar sem hefst á sunnudaginn.

1.Sæti; Fram; Fram er að ég tel með besta hópinn, með góða breytt, góða reynslu og held að þeir eigi eftir að komast upp léttilega.Hafa misst nokkra leikmenn frá því í fyrra en jafnframt fengið aðra í staðinn. Ásgeir Elíasson mun stjórna liðinu í sumar.

2.Sæti; Þór; Náðu ekki að sína sitt besta andlit í fyrra. Hafa lítið verið að styrkja sig, og ætla bara að treysta á sína heimamenn. Tel þá eiga góðann séns á að fara upp. Þeir hafa misst fáa leikmenn.

3.sæti; Þróttur; Hafa misst 10 leikmenn frá síðasta tímabili. En hafa styrkt sig með öðrum 10 leikmönnum. Kannski ekki á samagæða flokki. Eru því miklar breytingar í hópnum. Byrja oftast illa, og verður það líklega líka í sumar.

4.sæti; KA; KA-menn voru ekki langt frá því að komast upp í fyrra. Hafa misst marga leikmenn á borð við Pálma Rafn, Jóhann Þórhalls. Örn Kató, Jóhann Helga. Og fleiri frambærilega leikmenn, þetta verður erfitt hjá þeim í sumar. Og hafa fengið fáa leikmenn í staðinn.

5.sæti; Stjarnan; Ég hef trú á Stjörnunni í sumar. Þeir eru með mjög sterka sókn, tvo markahæstu leikmenn 2.deildarinnar í fyrrasumar og hafa fengið Þormóð Egilsson í vörnina, sem verður gaman að fylgjast með. Spútnik lið sumarsins!

6.sæti; HK; Síðasta sumar var erfitt hjá þeim, byrjuðu hræðilega en náðu fyrir lok að bjarga sér. Þeir hafa misst Rúrik Gíslason, Eyþór Guðnason, Árna Thor. svo e-h séu taldir, þeir hafa styrkt sig með því að fá Þórð Birgisson , en hann verður lítið með í sumar en hann er meiddur, einnig hafa þeir fengið Finnboga Llorens, Jón Þorgrím og Hermann Geir. og fleiri. Ég spái þeim 6.sæti en þeir eiga að getur betur, með góðri spilamennsku.

7.sæti; Haukar; Síðasta tímabil voru þeir heppnir að hafa ekki fallið. Þetta verður erfitt tímabil hjá þeim í ár, en þeir hafa misst marga leikmenn. Þorvaldur Már. Geoff Miles, Rodney Perry, Arnar Stein. Og fleiri. En þeir hafa fengið til sín, Jónmund Grétarsson, Albert Högnason, Edilon, og fleiri minni spámenn. Ef Haukar ætla sér að halda sér uppí deildinni verða þeir að halda sér frá meiðslum, því hópurinn er ekki stór.

8.sæti; Víkingur Ó.; Víkingar hafa fengið Vilhjálm Ragnar og 2 útlendinga fyrir tímabilið, en þeir stóðu sig vel í fyrra lentu fyrir ofan miðju í fyrra. Þeir hafa reyndar misst Hermann Geir, Eyþór Pál. og 3 útlendinga. Þetta verður erfitt hjá Víkingum í sumar að halda sér uppi. Hafa misst 3 mjög góða útlendinga en spurning er hvernig nýju útlendingarnir eru. Þeir verða að styrkja liðið, svo Víkingar falli ekki í 2.deild

9.sæti; Leiknir; Leiknismenn komust upp úr 2.deildinna síðasta sumar. Þeir hafa misst Simon Karkov, Jakop Spansberg og Vigfús Arnar Jósepsson, en hafa fengið 2 Svía sem verða að styrkja hópinn og einnig hafa þeir fengið minni spámenn sem ekki er gott að skirfa nöfnin á þeim hér, þar sem ég þekki ekki marga á þeim listanum.

10.sæti; Fjölnir; Fjölnismenn hafa misst Þórir Hannesson, Tómas Leifsson, Atla Guðnason sem voru á láni síðasta tímabil, og aðra leikmenn . En þeir hafa fengið Kristófer Skúla, Ómar Hákonarson, Ólaf Johnson, Sigmund Ástþórsson að láni frá FH. Miklar breytingar frá því í fyrra og hef ég litla trú á Fjölni í sumar. FALL!

 

Takk fyrir mig, Comment á spánna Takk fyrir :)?

//VovoWenger!


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 23:32:03 / vovo

Styttist í Íslandsmótið..

Kátur. Já ég er kátur. Ég er bara nokkuð ferskur. Í dag keppti ég með 4.flokki við Njarðvík í fótbolta á ásvöllum . Unnum 4-1. Tommi Krull, Sigurður Stefán, Ásgrímur og Marteinn settu hann í dag. Vá þetta var aðeins of góður leikur. Besti leikurinn okkar held ég. Strákar þetta er allt að koma :)
E. Ólafs. var að keppa sinn fyrsta opinbera leik sinn fyrir Hauka í knattspyrnu í dag. Hann átti góða innkomu, var settur í Strikerinn. Hann átti góða sendingu á Marteinn , en það var varið. En annars var hann í því að vera rangstæður og hitta ekki boltann. Einkunn; 7.
Svo eigum við einn leik við gróttu eftir svo er bara Íslandsmótið.
Eftir þennan leik er ég bara nokkuð spenntur :) Ef við spilum svona, þá má guð vita hvað við getum gert við heiminn =P

En svo er bara Íslandsmótið í fótbolta í meistaraflokki að byrja :D 14.maí að ég held. Næsta blogg þá ætla ég að spá fyrir 1.deildina. Bíðið spennt bara.

En Takk fyrir mig, Ég er frekar sáttur með daginn :D vá. Loksins sigur . Loksins allir með. Vantaði reyndar Almar Gauta, Eigum hann inni.

En Áfram Haukar

--->v0v0<--- 


» 12 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 22:47:36 / vovo

Ætli það ekki...?

Sææææææææææælar. Velkominn á fætur þið öll. Byð að heilsa. Nú er maður aðeins of þreyttur ... Afhverju?
Jú, því í gær vaknaði ég klukkan 07:01 og í morgun klukkan 08:18 Afhverju?
Jú því ég var að keppa í handbolta Afhverju?
Því að ég æfi handbolta Afhverju?
Því handbolti er feikilega skemmtileg íþrótt ;) og það er stemmari í því Afhverju?
Æji, þegiðu og farðu prófaðu þetta þá sérðu það :)

Allavegana, þá var síðasta handboltamótið mitt í vetur um helgina og er það búið. 6.sæti staðreynd og 4.sæti í Íslandsmótinu samanlagt. Nokkuð gott þar sem að meðaltali mæta 6- 10 á æfingu hjá okkur .. Og B-liðið vann og urðu líka Íslandsmeistara Til hamingju ;) Nokkuð góður árangur miðað við fjölda ...

En það sem bjargar þessu er að það er ekki skóli á morgun Afhverju?
Því það er Verkalýðsdagur ekki satt? Eða e-h svoleiðis, allir í fríi eða flest allir. Sem er gott, maður getur ekki verið að væla yfir því ...

En þetta var bara smá blogg þar sem langt síðan var ég bloggaði síðast, það kemur ruddalegt blogg næst, eða vona það,, En - comment - Ef þið sáuð hverju ég var búinn að breyta með þessu öll bloggin mín :) Spurning hvort fólk hafi fattað þetta ..


||v0v0 <


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3